|
|
14.01.2008 15:44:43 / guðrúnh
GUDRUNHARPA.BLOGGAR.IS já... svona
»
07.01.2008 17:21:01 / guðrúnh
Ég leiddist út í það áðan að búa til nýja bloggsíðu.. Ástæðan fyrir þessu er sú að ég get ekki sett inn myndir á þessa lengur, allavega ekki á þann einfalda hátt sem ég gerði alltaf (copy/paste).. Þá varð ég fúl... Síðan sem ég bjó til heitir www.gudrunharpa.bloggar.is og hún er alls ekki tilbúin... Það fór reyndar slatta í taugarnar á mér að þar þarf maður að borga fyrir að fá að setja inn myndir.. Reyndar alls ekki mikið en samt... mig langar að hafa þetta ókeypis. Þið megið endilega kíkja á hina og endilega að segja skoðun ykkar á þessu, þ.e.a.s ef að þið hafið einhverja skoðun á þessu. Guðrún Harpa.
»
05.01.2008 23:13:49 / guðrúnh
Núna er meira en mánuður síðan ég bloggaði síðast og að því tilefni fannst mér viðeigandi að dunda mér aðeins við það.. það er nefnilega á svona stundum sem ég nenni að blogga.. Var að koma úr matarboði hjá afa, það fóru allir í göngu í blíðviðrinu sem allt í einu virtist streyma um Suðurnesin þennan ágæta laugardag.. ég fór meira að segja í sund! Allavega... ég var að tala um þessar ákveðnu stundir þegar maður nennir allt í einu að blogga.. Þá er maður svona einmitt kominn úr mataboði og allir hinir fóru í göngu nema ég því að eins og allir vita að þá finnst mér orðið asnalegt að hreyfa sig og reyna að vera allur hraustur og sætur.. hamingjan felst nefnilega bara í peningum og það hef ég löngu fattað.. alltaf sagt það. en þessar umtöluðu stundir eru þannig að maður veit ekki hvað maður á að gera og fer þess vegna í tölvuna og eyðir mikilvægum tíma sem gæti nýst í að að skoða heiminn eða að hjálpa öreigum, í það að blogga  Og þannig varð heimurinn til... og líka Guð.. Þessa dagana gæti ég unnið alla í bauga undir augum-keppni.. Vann Snorra áðan.. Hann er einn af þeim sem fer í göngur.. En ég get ekki sagt að ég sé tönuð þessa dagana.. Þó að Óskar minn ávarpaði mig sem Tanfríði á jólapakkamerkisspjaldinu! (þetta er pottþétt ek ki eitt orð ). Annars eigið þið bara endilega að skoða myndirnar frá Costa del Sol eða Benidorm, ég ætla allavega að gera það.. líður ekkert alltof vel með snjóandlitið mitt...
Annars er allt gott að frétta, Gummi og Arna hafa verið á landinu og það er alltaf gaman og við Óskar erum búin að bulla mikið í jólafríinu 
Gleðilegt ár, hafið það gott. Guðrún Harpa. Lag dagsins: Black waves and bad vibrations - Arcade Fire, uppáhalds hjá mér núna
»
24.11.2007 22:29:03 / guðrúnh
Allt í lagi... ég hef ekki staðið við loforð mitt, það var rugl
gaman í danmörku með systkinum mínum á Arcade fire og svo gaman að
hitta my lovebabies aftur eftir svona langan tíma.. Vá það var svo
gaman á Arcade fire... ég mun aldrei ná mér eftir þetta.. en ég vil
bara segja að ég hef ekki aðgang að tölvu heima hjá mér því að
gamla tölvan dó greyið og popz er vonandi að redda nýrri núna  En
núna er afmælispartý hjá honum óskari og ég ætla ekki að eyða
kveldinu í það að blogga... það er sorglegt.. bless
»
10.11.2007 20:52:47 / guðrúnh
Komin heim frá Danmörku, það var sjúúúuúklega gaman! Blogga betur
um það síðar og hendi inn myndum.. Þetta var bara smá tilkynning
»
01.11.2007 19:11:37 / guðrúnh
I
had a king - Joni Mitchell
I
had a king in a tenement castle
Lately he's taken to painting the pastel walls brown
He's taken the curtains down
He's swept with the broom of contempt
And the rooms have an empty ring
He's cleaned with the tears
Of an actor who fears for the laughter's sting-
I can't go back there anymore
You know my keys won't fit the door
You know my thoughts don't fit the man
They never can they never can
I had a king dressed in drip-dry and paisley
Lately he's taken to saying I'm crazy and blind
He lives in another time
Ladies in gingham still blush
While he sings them of wars and wine
But I in my leather and lace
I can never become that kind -
I had a king in a salt-rusted carriage
Who carried me off to his country for marriage too soon
Beware of the power of moons
There's no one to blame
No there's no one to name as a traitor here
The king's on the road
And the queen's in the grove till the end of the
year-
Arna mín svo sæt og fín,
bráðum ég kem til Gumma og þín,
fyrir þig ég myndi leika svín,
á stærsta torginu í allri Vín.
ps. downloadið þessu lagi 
»
29.10.2007 21:36:42 / guðrúnh
Ég fattaði allt í einu að þið gætuð verið búin að skoða skautamyndirnar vel og kannski að ykkur langaði smá að vita hvað gengi á í lífi listdansarans... míns! (þíns.. okkars, bátars) Og ég þarf að skrifa aðeins inn á bloggsíðuna mína því ég tala aldrei.. Nú er orðið stutt í ferð mína til Danmerkur, þar sem ég mun hitta blóðsystkini mín á ný, hvílík sæla.. Eina sem ég veit samt að við erum pottþétt að fara að gera er að fara á tónleika og drekka hanastél úr fiskabúri.. án gríns.. þau sögðu það.. En ég veit ekkert meira því að í þau skipti sem við höfum hist á skype höfum við bara öskrað á hvort annað um börn.. Mamma gerir það stundum líka.. sérstaklega á bókasafninu... En ég auðvitað hlakka það mikið til að fara til þeirra að ég kem beint úr sturtu og blogga um það.. Annars er ég að spá í að fara að kíkja á körfuboltaæfingu.. sem er slæmt því mér var farið að ganga svo vel í að verða feit... en hins vegar eru fingurnir alltaf í góðu formi því að þeir titra alltaf svo mikið þegar ég á að spila á tónfundum í tónlistarskólanum.. nei djók.. en mig langar án gríns að fara að æfa körfubolta aftur því að núna kann é ekki að drippla lengur og langar rooooosalega að læra það aftur... Nema að einhver geti verið ber að ofan að kenna mér það án þess að ég fari á æfingu.. ha Óskar? plís? En á hinn bóginn þá langar mig að vera afslöppuð en ekki hlaupandi... ok þetta er komið út í rugl. Ef þið vilduð vera svo væn og gefa mér five þegar þið sjáið mig þá myndi mér líða mikið betur.. Oh og annað.. ég mun aldrei fá bílprófið.. þó að ég sé virkilega að reyna að nenna því núna.. þá er þetta alltaf verið að fresta þessu.. Mér finnst alveg gaman að það snjóaði um helgina en þurrt veður hefði tryggt mér bílpróf í lok þessara mánaðar. ég segi ekki meira.. Guðrún Harpa. Lag dagsins: Wake up - Arcade Fire, út af því að það kom á shuffle hjá mér um helgina og mamma og pabbi slömmuðu..
»
07.10.2007 15:22:15 / guðrúnh
Smá svona
intro..
svona smá blús/djassað
hljómborð..
bamm bamm bamm bamm
bamm
wúúú
(bassaslæd)
dángdananana
bamm
bamm
bamm
Smell
bamm
bamm
bamm
Smell
bamm
bamm
bamm
vúmm
dammdammdammdammDamm
I get so lonely
Can't let just anybody hold me
You are the one that lives in me, my dear
Want no one but you
I get so lonely
Can't let just anybody hold me
You are the one that lives in me, my dear
Want no one but you
Sittin' here with my tears, all alone with my fears
I'm wonderin' if I have to do without you
But there's no reason why I
Fell asleep late last night cryin' like a newborn child
Holdin' myself close, pretendin' my arms are yours
I want no one but you
Ahh.. Good times 
Þetta
lag er eitt af þeim lögum sem við Arna spilum alltaf þegar
við förum á rúntinn..
Við
hlustum næstum því bara á RnB lög og syngjum og röppum eins og
crazykids (því þúst við kunnum textana svo vel..)
Listinn
yfir rnb lögin (hann er pínu fyndinn):
Lovestoned - Justin Timberlake
Get on the good foot - JT og Timbaland
Dance tonight - Lucy Pearl
Can't stand your mother - Lucy Pearl
Can I get your number - Mariah Carey
Get it on tonight - Montell Jordan
She wants to move - N.E.R.D.
Maybe - Pharell Williams
Frontin - Pharell og Jay Z
Number one - Pharell og Kanye West
Shake ya tailfeather - Nelly, P. Diddy og Murphy Lee
Roses - Outkast
Drop it like it's hot - Snoop Dogg og Pharell
Hate it or love it - The Game
Ok..
þetta er hann í grófum dráttum, svo er listi yfir önnur lög sem við
hlustum mjög oft á svona inn á milli :
The Arcade Fire.. bara
allt
Do the whirlwind - Architecture in Helsinki
Harder better faster stronger - Daft punk
Soul meets body - Death cab for cutie
Son of Sam og Happiness - Elliott Smith
The girl from Ipanema - Frank Sinatra
Outside - George Michael
Strict Machine - Goldfrapp
Ladyshave - Gus gus
Get your way - Jamie Cullum
Grace, Last goodbye og Lover you should've come over - Jeff
Buckley
No such thing, My stupid mouth, Why Georgia og Your body is a
wonderland - John Mayer
A case of you, Both sides now, I had a king - Joni
Mitchell
La Billirubina - Juan Luis Guerra
L.S.F - Kasabian
Bones, Read my mind, Jenny was a friend of mine - The Killers
Golden Skans, Gravity's rainbow - Klaxons
It ain't over till it's over - Lenny Kravitz
Let's hang on - Manhattan Transfer
Kerfisbundin þrá - Maus Dashboard - Modest mouse
Harvest moon, The needle and the damage done - Neil Young
Songbird, Champagne supernova - Oasis
No tomorrow - Orson
Horfðu aftur - Páll Óskar
Jump, fire - Pointer Sisters
Kiss - Prince
17 years - Ratatat
Kiss from a rose - Seal
Hey nineteen - Steely Dan
Casimir Pulaski day - Sufjan Stevens
Club tropicana - Wham

Stundum erum við gegt
flippaðar og tökum ýkt,ýkt mikið af myndum af okkur með
sólgleraugu!
ÆI ER ÞETTA EKKI
GAMAN?!
Annars sakna ég Örnu.. Líka
Gumma..
Ég átti
skemmtilega helgi..
Óskar
bauð mér á skauta og út að borða á laugardeginum..
Það var gaman á skautum og ég var með roooooosalega stóran
trefil..

De La Hoja að keyra fagran Yaris

WHOAH

Við byrjuðum á því að halda okkur í svona grindur til að
detta ekki..

hehe, mjöööög svalt

Óskar var snöggur að ná töktunum og losaði sig við
grindina

Ég ótrúlega hissa hvað gólfið var kalt eftir að ég prufaði
að sleikja það

Vígalegur á s-velli

Það sést kannski ekki en ég var á blússandi ferð
þarna..
Annað í fréttum:

Hörður er búinn að fá sér iphone, fögur græja

og já.. eitt annað..
Við Óskar prufuðum að safna skeggi um daginn.. Endilega
segið skoðun ykkar á þessu, ég fékk rosa gott feedback á þetta.. en
Óskar þótti ekki alveg eins töff..


Guðrún Harpa 
Lag
dagsins: New slang - The shins plús öll lögin nefnd
í þessari færslu 
»
17.09.2007 22:18:51 / guðrúnh
Ég hlýt að hafa gert eitthvað slæmt í fyrra lífi því ég virðist ekki eiga skilið að líða vel á msn! hehe.. líða vel á msn.. En samt, pínu án gríns þá vill msn mig ekki.. í sumar eyðilagðist hotmailið mitt að einhverjum ástæðum.. sem betur fer var í lagi með hotmale í allt sumar.. óóóóóóhóhó! Reyndar var þessi ekki frumsaminn.. Óskar á höfundarréttinn.. Allavega, allt í einu þegar ég ætlaði að signa mig inn á hotmailið þá gat ég það ekki.. það var bara búið að eyða addressunni minni! (ég veit, slettur) Svo að ég fékk mér gmail.. en málið er að ég get ekki náð í addressulistann minn með öllu því fólki sem ég var með á msn áður fyrr.. Áðan ætlaði ég að fara inn á msn til að segja Brynjari að hann sé með fallegt hár en þá mátti ég ekki signa mig inn því að ég varð að niðurhala nýju msni, sem heitir msn live.. Og núna þegar ég er búin að því þá sé ég ekki hver er online nema Brynjar! haha, ótrúlegt en satt, það eru nokkrir búnir að signa sig inn á þessum tíma og glugginn niðri í hægra horninu poppar upp "Bond has just signed in" eða þú veist.. Clooney eða einhver.. kannski Hugh Grant.. en svo get ég ekkert talað við þá manneskju því að það stendur bara að hún sé offline! Ef þú varst svo góð/ur að nenna að lesa þetta og veist af hverju þetta vesen er, þá máttu kommenta.. annars ekki.. neh djók... og einnig máttu adda mér á msn! gudrunatla@gmail.com Ok?
»
29.08.2007 20:22:46 / guðrúnh
Smá fréttir, þetta eru fréttir sem eru hálf sorglegar, en svo hinn helmingurinn á móti því er ánægjulegur.. Arna my lover hotionpotion babybig systir er flutt út til Danmerkur.. What a hoe she must be! Sem skilur mig næstum því eina eftir heima með mömmu á þriggja vikna millibili.. Kisan sem fer út að leika og kemur svo inn til að pissa og kúka er ást-æðan fyrir því að ég segi næstum því.. Hún stækkar og stækkar þessi elska.. bráðum verður hún að manni.. Það er smá herferð í gangi hérna á heimilinu þar sem mamma var að kaupa sér nýjan les stól í stofuna og litla kisa þráir það mikið að fá að lúlla sér í honum.. En stólinn fer henni ekki nógu vel.. kisan er eitthvað grá og hvít en blessaður stóllinn er svartur.. ekki alveg nógu 90°.. Annars verður svakalega gaman hjá okkur mömmu að bulla saman  Já, ég var að cyber-gráta yfir því að Arna er farin út.. Stundum þegar önnur hvor okkar var andvaka og leiddist það að reyna að sofna áttum við það til að banka létt á vegginn (þar sem að herbergin okkar eru hlið við hlið og rúmin okkar við sama vegg) og ef að við fengum bank til baka þá var það sleepover.. Roooooosa sætt.. Ég sem sagt sakna hennar mikið. En þegar litið er á hina hlið málsins þá er hún að gera eitthvað sem skiptir hana máli og blablablabla... nei grín... ég er ekki alveg svona bitur.. En þið vitið, ég er glöð fyrir hennar hönd.. Ég er ánægð fyrir þína hönd Arna þó að sálin mín sé ónýt og ég er orðin grá á litinn.. BY THE WAY! Þann 7. nóvember verða haldnir Arcade Fire tónleikar í Kaupmannahöfn sem ég verð mjög líklega á!  Og Óskar.. Og Nanna... Og Jenný! Og vonandi Brynjar skólakærastinn minn líka! Og auðvitað Sigurður Freyr nýja eldabuskan mín. En tónleikar lífsins verða hinsvegar á morgun, fimmtudaginn 30. ágúst á grasbalanum á móti Duus, þar sem við Siggi og Nanna tökum örfá lög sem þið gott fólk hafið ekki enn fengið þessa góðu kitl tilfinningu í eyrun yfir  Þeir byrja 19:30 og það verða flottar hljómsveitir eins og Jet Black Joe og Mammút! Rosa gaman  En skólinn er byrjaður og ég hef þyngst um 20 kíló.. bara massi.. Ég er mjög ánægð með þennan árangur og fólk hefur mikið verið að pæla hvort að ég sé búin að vera að nota stera í sumar.. En það er ekki satt, ég var bara að safna vöðvum á Hólmavík... Ég og Andri Freyr.. og Fjóla með blómin í hárinu.. Nú ætla ég að hætta í tölvunni því mig langar ekki að sitja hérna lengur... Guðrún Harpa sem fékk sér vöðva í sumar og var bara að grínast með þessi 20 kg.. þau eru í raun 40.. Lag dagsins: 1234 - Feist, frábært lag sem ég heyrði fyrst í dag, svona hress kvenkyns útgáfa af Sufjan Stevens 
»
07.08.2007 19:42:57 / guðrúnh
Dananananana -nananananana
who you gonna call?
Ghost busters!
Núna er sumarið víst búið, ég átti
mikilfenglega verslunarmannahelgi og svo er ég bara að koma heim
næstu helgi..
Helgi?
Neiiii, Guðjón!

Hann byrjaði..
Annars hlakka ég alveg til að koma heim og sofa
allan tímann í rúminu mínu og keyra oft og mörgum sinnum fram hjá
Bónus..
Og kannski fara út að labba með Óskar..
Ég vona samt að það verði sól og blíða
heima.. þá gæti maður hugsanlega faið í sund og brúnkast
smá..
Ég veit.. ég vinn úti en það er bara alltaf
vindur í staðinn fyrir sól!
Ég var á Hólmavík um verslunarmannahelgina. Það
var skírn á afmælisdaginn minn, laugardaginn, ég fékk fullt af
pökkum því það komui svo margir, hehe jééh! 
Ég fékk afmælissönginn þrisvar þennan dag.. fyrst
tók kvennakórinn hérna heima sig til um morguninn og söng fyrir mig
lofsönginn ásamt nokkrum jólalögum sem vöktu mikla kátínu.
nei, þær sungu afmælissöngiiiiiinn! Kannski var
einn bassi þarna með þeim.. ég heyrði það ekki alveg því ég var
sofandi..
Svo í kirkjunni þegar búið var að skíra litla
Atla Jóhann, þá tóku kirkjugestir sig til og sungu
afmælissönginn.
Svo í partýi úti í sveit um kvöldið þar sem ég
bollaði mig upp og fór svo á trampolín.. Svo vaknaði ég
bakveikari en nokkru sinni fyrr daginn eftir..
Skemmtilegt partý 
En.. ég setti inn myndir frá
bryggjuhátíðarhelginni.. Ég tók fáar á mína myndavél.. Myndavélin
hans Óskars vann yfirvinnu á laugardagskveldinu... svo að hann á
allar myndirnar frá ballinu.. talið við hann 
Annars hefur ekkert merkilegt gerst í sumar
nema að það skreið kónguló inn á mig.. ég aflífaði hana
vegna perraskaps.
Annars langar mig að þakka ykkur öllum sem
nenntuð að senda mér afmæliskveðju, og þeim sem gerðu í því að
hringja í mig á nóttinni.. ehm.. Jenný, siggi...
Ég er farin að skola af mér grasið sem var í
garðinum á Kópsnesbraut 19.
Guðrún Harpa
Lag dagsins: Kings of
convenience - misread... man oh man.. þetta er söngvarinn úr
the whitest boy alive.. þeir eru að semja svona þægilega
músík.. og líka Golden skans með the klaxons.. partý lag í
lagi
»
26.07.2007 20:21:28 / guðrúnh
Jæja perrarnir mínir..
Hér sit ég þá, fyrir framan tölvuna, eitthvað sem ég
hef ekki gert mikið af í sumar.. Þess vegna vitið þið ekki
hvort ég er dáin eða lifandi..
Fyndið samt að fólk kíki á netið til að komast að
því hvað sé að frétta af manni...
eða konu..
Fórstu að hlæja?
Ég rakst á fyndna auglýsingu í dag í kaffinu
mínu..Það er verið að auglýsa áskrift af Andésar Andar
blöðunum, svo er einhver svona leikur sem krakkar geta tekið
þátt í með að senda inn frumsamda brandara..
Lofar bara alls ekki góðu.. Allavega ekki góðu
hláturskasti.. nema þér finnist ófyndni
fyndin..
Á
auglýsingunni, sem er heilt A4 blað eru svona dæmi um
brandara sem krakkar eru búnir að senda inn..
"Hvað er það sem er hvítt og með appelsínugulan
gogg?
-Andrés Önd!"
obbo bobb
"hvað borðar söngvarinn alltaf?
-la la la lasagna"
Ég vona að ég verði einhverntíman svona
fyndin
Það er vægast sagt búið að vera mjög gaman
undanfarna daga, náttúrulega alltaf gaman í vinnunni þar sem
að ég geri fátt annað en að hlæja.. jú og
vinna..
Bryggjuhátið seinustu helgi og hún var alveg hreint
frábær.. náði nokkrum myndum þaðan 
Jenný Ugla kom og Karen frænka, ásamt Sigga og
Nönnu.. Og auðvitað Ásta Rós og Dóra. Svakalegt fjör, vægast
sagt.
Við Óskar sváfum í bílnum á laugardeginum, mér
fannst það voða kósý og gott, en Óskar vaknaði um sjö á
sunnudagsmorgninum og keyrði heim því hann var að drepast í
bakinu blessaður snáðinn..
Svo er meeeega stuð í kvöld þar sem 4 partýum verður
slegið saman í eitt..
Lára, Siggi Orri, Andri, Kolli, Billa, Siddi og ég
ætlum að bruna inn í Bleiksdal í Kálfanesinu, tjalda, grilla
og spila á gítar fram eftir nóttu, það verður sko
stuð!
Þetta er tvöfalt kveðjupartý og tvöfalt afmælispartý
þar sem Láran okkar er að fara til Paraguay sem skiptinemi og
Siddz in the house of hoes er að fara bara heim og við Andri
eigum afmæli í næstu viku.. svo við ákváðum að halda
suddalegt partý þar sem vði gátum öll verið
saman.
Myndir frá því ssseinna!
Já, svo á ég að eiga 28 des. og það er komin smá
kúla.. rosa gaman 
Kveðja, Guðrún Harpa mamma!
Neh djók!
Fékk allsvakalegan kjánahroll við að skrifa þetta!
haha...
Djók, grín, skop, plat...
Hafið það gott!
Lag
dagsins: Dashboard - Modest mouse.. Er að fíla þetta
lag þessa stundina 
»
03.07.2007 01:25:52 / guðrúnh
Homies and hoesions!
Núna er klukkan pínu margt og ég er svona smá þreytt
en er ekki farin að sofa því mér finnst ég eki eiga að vera
þreytt því ég svaf svo lengi í kvöld því ég fór í sund að
leika mikið og rosa hratt með stilltan lítinn frænda sem
hefur gaman að því að skalla sundbolta og fara í leik sem
gengur út á það að hella vatni á hvort annað úr fötu og verða
illt í augunum...
Geeeðveikt gaman.. en ég var svo
þreytt..
Hamingjudagar búinir, þeir voru skemmtilegir.. Óskar
kom og var bara alltaf fullur í slag við eldri
gaura..
Ég skemmti mér eins og híena á laugardagskveldinu,
þá fórum við á ball og ég dansaði með lokuð augun til að
enginn gæti séð hvað ég dansa asnalega..
Svo er afi alltaf að baka vöfflur...
fínt sko..
Við Óskar fórum upp í Kálfanes þar sem foreldrar
nokkuð skyldir mér eru að byggja sér býli.. það var gaman..
veðrið var gott og pabbi tók smá flipp með okkur á
traktorunum.. tók enga myndavél með.. hefði samt átt að gera
það..
Kenni Óskari um.. hann var í svo stelpulegum
bol..
Guðmundur Ragnar lítill frændi fór strax að velta
því fyrir sér af hverju Óskar væri í svona stelpulegum bol
þegar hann kom.. fjólublár polo bolur.. gay..
Litli getur samt ekki sagt mikið.. fékk dúkku í
afmælisgjöf og elskar hana út af lífinu..
Ég var Ruslamaður í vinnunni í dag.. Ekki kúl.. eða
jú.. smá..
Maður þarf samt að vera svo sterkur í þessum
ruslabransa.. Eða þá að Hólmvíkingar borði bara mat sem kemur
í steypu-umbúðum..
Eða að ég sé bara auli..
neeeh... get ekki andað fyrir
vöðvum.
Rosalega komu samt margir keflvíkingar og
Njarðvíkurmeistarar um helgina.. Fyndið að fíla sig pínu eins
og á Fjölbrautaskólaballi einhversstaðar allt
annarsstaðar.
Ég tók slatta af myndum sem koma vonandi bráðum
hingað inn.. ef ég átta mig einhverntíman á þessu picasa
sulli..
Var ég búin að minnast á að ég er að koma heim næstu
helgi?
Kem heim á fimmtudag og fer á sunnudag.. ég hlakka
alveg smá mikið til..
Annars hlakka ég sjúklega til 21. júlí þááá kemur
aðal fólkið í bæinn 
Jennmaster 360° og fleiri sniðugir... maaaan það
verður gaman 
Nú skal ég þegja og sofa..
Góða nótt.
Lag
dagsins: Lovestoned - Justin Timberlake.. vááá hvað
ég er að dýrka þetta lag í haus! (?) Kolli er alveg búinn að
tendra JT bál í hjarta mér og núna er ég alltaf að dansa með
hatt...
»
19.06.2007 02:09:45 / guðrúnh
Hérnaaaa... Kann enginn að komennta?
Eða er
öllum alveg, alveg, ALVEG sama um Sveitalínu?
Nei ég
bara spyr..
Fólk
sem ætti í raun og veru að sakna mín og komennta
oftar:
Arna
Gummi
Herra Freyr
Kári
Ólafur
Ingvar kannski
Margrét Sandgerðisdóttir.. hún er þó búin að hringja tvisvar..
hmm.. Óskar.. hann er reyndar búinn að koma og hringja frekar
oft..
Nei ég meina.. það eru alveg fleiri, ég held að þið vitið alveg
hver þið eruð..
(þið
verðið að ímynda ykkur mig með útgrátin augu og vælutón í
röddinni)
Annars er ég búin að fá mér nýtt líf hérna á Hommavík.. Búin að fá
mér nýja foreldra sem nenna að koma í hengimann, ný systkini.. tvo
bræður sem nenna alltaf að koma í körfubolta..
Nýtt heimili þar sem maður fær sér alltaf snakk áður en maður fer
að sofa..
Nýtt
herbergi með tölvu og sítengingu og tvíbreiðu rúmi með
eggjabakkadýnu og skrifborði..
Þið vitið.. bara hið
fullkomna líf!
En
svona án gríns, hvað varð um allt fólkið sem nennti að svara manni
með skemmtilegum kommentum.. og kannski einstaka kveðjum í
gestabók..
hehehe,
nú fæ ég annað hvort yfir-drull eða nákvæmlega núll komment því
allir hafa sama húmorinn 
Ég er
samt orðin ógeðslega mössuð því að vinnan sem ég er í er átak eftir
klukkan 13.. Við Andri Freyr erum sett í svo mössuð verkefni að
stundum fáum við blóðnasir..
Já ég
veit! Rosalegt..
Helgin
mín var hreint út sdagt frábær! Óskar minn kom í heimsókn og við
höfðum það kósý saman í góða veðrinu, allavega á
laugardaginn.
Við
fórum upp í Kálfanes þar sem fyrrum foreldrar mínir eru að byggja
hús, lágum þar í grasinu og gerðum okkar besta í
taninu.
Kíktum
á Riis með Kolla og Billu og fleirum að spila og það var mjög
gaman, kvöldið endaði samt uppi á körfuboltavelli þar sem við Óskar
tókum nokkra leiki við Kolla og Billu, keflavík - Njarðvík.. Gekk
reyndar illa hjá okkur Óskari að skilja hvort
annað...
Óskar,
þú áttir að vera á meiri hreyfingu, gefur ekkert boltann á kantinn
og stendur svo bara á sama stað, hreyfa sig..
já..
svo var ég líka ýkt léleg..
Það var
svo leiðinlegt samt þegar Óskar fór.. glatað að kveðja
hann..
Fýlan
hjá mér skánaði heldur ekki þegar ég heni ipodnum á shuffle og
fyrsta lagið var babe I'm gonna leave you, rétt eftir að hann
fór..
vælukjói..
Pabbalingur kemur líklega á morgun og það er náttúrulega góð
ástæða til að deyja ekki í nótt.. Hlakka til að sjá hann, hefur
eitthvað svo margt gerst síðan ég sá hann seinast að það virðist
eins og í minnsta lagi tveir mánuðir, þó það séu tæpar 4
vikur..
ég fer
að láta reka hann úr þessari vinnu.. Hann á að vera hjá
mér..
Þið sem
eruð búin að skoða myndirnar frá Spáni megið líka endilega tjá
ykkur um hvað Óskar var ógó lame að setja myndir af mér sofandi með
opinn munninn inn á netið..
Má
maður ekki slaka á?
Guðrún
Harpa..
Lag dagsins: It don't matter now - Alison
Krauss... Söngkona með rosalega fallega rödd, er búin að hlusta
rosalega á hana undanfarið 
»
13.06.2007 19:49:08 / guðrúnh
Þetta er víst töff...
Komið
þið sæl ungbörnin góð.
Jú, það
er rétt hjá henni Rebekku minni systur að það er frekar langt á
bloggtíma síðan ég henti hérna inn stórfrétt um hvað ég hef verið
að gera merkilegt... (samt.. bloggtími?, you tell
me)
Hvað um
það..
Við
erum víst komin heim frá Spáni þar sem sólin skín mikið og hitinn
umlykur léttklæddan líkamann.
Það var
bara mjög gaman, skemmtilegur hópur og ekki síður skemmtilegar
uppákomur.
Mér
tókst reyndar að týna myndavélinni minni á fyrsta degi, sem er
mjöööög glatað.. Pabbi er búinn að kaupa aðra í New York, núna
hljóma ég eins og ég geti ekki talað fyrir öllum silfurskeiðunum í
munninum á mér, en ég ætla nú samt sem áður að borga hana
sjálf.
Feis!
það gerðist margt
einstakt í þessari ferð, ofarlega
í huganum er samt þegar Hörður var að labba
fullur, afturábak nður brekku og datt, fór á sjúkrahús daginn eftir
þar sem kom í ljós að hann var brákaður á hægri ökkla og vinstri
úlnlið..
Já
finnst þér þetta fyndið?
Mikið
fyndnara þegar hann kom út af klósettinu með gifsið um höndina og
greindi okkur frá því hvað honum þótti erfitt að skeina sér með
hægri..
Það er
fyndið..
Hörður
er samt jákvæðasta manneskja á jarðríki þannig að hann lét
þetta ekki skemma mikið fyrir sér 
Við
Óskar áttum saman quality stundir sem ég mun seint gleyma og íbúðin
var náttúrulega mjög fín 
ég ætla
einmitt að vinna í því næst að setja inn myndir.
Núna er
ég komin á hólmavík og búin að vera í tæpa viku og ég skemmti mér
náttúrulega bara mjög vel.
Vinnan
er ekkert smá skemmtileg, ofsalega fjölbreytt, á hverjum degi er
okkur sett fyrir einhver verkefni sem við vitum ekkert hvernig við
eigum að leysa, en alltaf hefur það reddast.. hingað til allavegana

Við
Andri Freyr erum team í þessu, keyrum um á eeeeeeldgamalli mözdu
með palli, og það er rétt að minnast á það að það er virkilega
mikið áhættuatriði að sitja í farþegasætinu þar sem maður er aldrei
viss um að hurðin sé almennilega lokuð..
já,
bíllinn er það gamall og lúinn.. Samt stóðst hann skoðun um daginn,
sem er bara hálf ótrúlegt!
Við
erum með unglingavinnuna alltaf fyrir hádegi, og þar er nóg af
hressum krökkum sem nenna lítið að vinna 
Samt..
örugglega miiikið duglegri en helmingurinn af vinnuskólakrökkunum
hérna á Íslandi.
Óskar
er væntanlegur um næstu helgi á coltinum.. Ég hlakka virkilega til
að sjá hann, þá er ég ekki að tala um bílinn.. þó ég hlakki alveg
til að sjá hann líka 
Herbergið mitt hérna hjá Mæju og Snorra er orðið innlit útlit
fínt og veðrið hérna er aldrei búið að vera vont síðan ég
kom..
rúst.
Svoleiðis er það..
Ég ætla
að segja þetta gott í bili, og setja inn á síðuna myndirnar sem að
Óskar tók, þær eru margar hverjar skemmtilegar 
Guðrún
Harpa
Lag dagsins: Green eyes - Coldplay... ég sakna
svooooo....
»
Síður: 1 2 3 ... 10
|
|